Barbara Birgis ljósmyndari hefur starfað við ljósmyndun í yfir 20 ár en hún útskrifaðist frá The Art Institute of Fort Lauderdale í Bandaríkjunum árið 1999 með Associate of Science in Photography. Við útskriftina vann hún Award of Best Portfolio in the program of Photography. Barbara átti og starfrækti Ljósmyndaverið Skuggann í Bankastræti í 5 ár, en hætti svo með starfsemina þegar hún fluttist erlendis árið 2005. Barbara býr nú við Costa Blanca ströndina á Spáni í litlu þorpi sem heitir Algorfa. Ef þú býrð hér á Spáni eða ert í fríi, er hægt að tímasetja myndatöku hér í nágrenninu. Mikið af fjölskyldufólki sem komið hefur til Spánar hefur nýtt sér þessa þjónustu og skellt sér í myndatöku hér í sólinni.
|