|
Barbara er að taka myndir hér á Spáni og er að notast við það besta sem þekkist í ljósmyndabransanum. Allur pappír sem prentað er á er innfluttur frá Hollandi, en prentarinn sjálfur er útbúinn sérstökum blekhylkjum. Myndir Barböru eru mjög sérstakar, en hún tekur allar myndirnar utandyra, valin er staðsetning hverju sinni og mikill metnaður er lagður í myndatöku og alla eftirvinnslu. Aðaláherslan er að hafa myndirnar einfaldar og tímalausar.
|